Atlantsolía leitar réttar síns 3. október 2005 00:01
Skeljungur segir Atlantsolíu hafa brotið lög með auglýsingaskilti þar sem lofað var tveggja króna afslætti. Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu segir þetta alrangt og segir fyritækið ætla að leita réttar síns vegna málsins. Hann segir einnig að Skeljungsmenn þoli illa samkeppni. Skiltið hefur verið tekið niður en Hugi segir þó Atlantsolíu muni leita frekari svara við því hvers vegna Neytendastofa telur það brjóta í bága við lög, skilti sem einungis auglýsti afslátt af bensíni. Hugi segir að Neytendastofa telji að skiltin séu í sama flokki og skilti frá stóru olíufélögunum hér áður þar sem þau auglýstu fjögurra króna afslátt af bensíni. Talið hafi verið að neytendur fengju ekki réttar upplýsingar með þeim. Atlantsolía telji hins vegar að þau skilti sem hún setji tímabundið séu í fullu samræmi við reglur sem gildi um verðmerkingar við bensínstöðvar. Hugi vandar olíufélöginunum ekki kveðjurnar og segir að svo virðist vera sem þau þoli ekki samkeppni. Atlantsolía telji sig vera í fullum rétti við að kynna lækkað verð tímabundið. Lækkunin hafi bara gilt í tvo daga en eftir einungis 20 klukkustundir hafi forsvarsmenn Atlantsolíu fengið símtal frá Neytendastofu þar sem kokkað hafi verið upp í smiðju eins af keppinautum fyrirtækisins. Hugi segir þetta ekki í fyrsta skiptið sem Skeljungur kvartar yfir samkeppni en Skeljungur sendi á síðasta ári bæjaryfirvöldum í Kópavogi bréf þar sem bensínafgreiðslustöð við Dalveg, við hlið bensínstöðvar Skeljungs, var mótmælt og fullyrt að Skeljungur ætti skaðabótakröfu á hendur bænum vegna fjárhagstjóns ef stöðin yrði leyfð. Sem sagt Skeljungur mótmælti samkeppninni. Skeljungsmenn sögðu að umferð að hinni nýju stöð færi um sömu aðrein og umferð að Select-stöðinni og gangandi vegfarendur á lóðinni og starfsfólk yrði í hættu. Þá sögðu Skeljungsmenn að óskiljanlegt væri, hvers vegna troða þyrfti bensínstöð á svæði þar sem önnur væri fyrir og segist Hugi undrast aðferðir Skeljungsmanna. Ekki náðist í forsvarsmenn Skeljungs fyrir fréttir.
Fréttir Innlent Mest lesið Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Innlent Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Erlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Innlent Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Erlent Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Fleiri fréttir Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Sjá meira