Innlent

Síldarvertíðin hafin

Síldarvertíðin er hafin. Fjölveiðiskipið Beitir frá Neskaupstað landaði um 200 tonnum af síld í Neskaupstað í dag. Þetta er annar túr Beitis, en skipið kom með um 200 tonn af síld að landi á föstudaginn og fer aflinn til vinnslu hjá Síldarvinnslunni. Síldin hefur veiðst suðvestur af Hvalbak en það tekur um fimm tíma að sigla á miðin. Skip Samherja eru að veiðum út af Vestfjörðum en þar er lítið að hafa eins og stendur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×