Aðgerðum hætt við Slippstöðina 1. október 2005 00:01
Starfsmenn Slippstöðvarinnar Akureyri ákváðu um sexleytið í gær að hætta aðgerðum eftir dramatískan fund með stjórnarformanni fyrirtækisins og lögfræðingi hans. "Við féllumst á að hætta aðgerðum á þeim forsendum að okkur þótti sýnt að við myndum ekki ná fram þessum launakröfum okkar," segir Þorsteinn Haraldsson trúnaðarmaður starfsmannanna. Starfsmennirnir höfðu átt von á því að fá laun sín greidd af fjármagni sem var að koma inn í fyrirtækið, en á fundinum var þeim sagt að Landsbankinn hefði átt veð í þessum peningum og hefði fryst launagreiðslurnar. Ekkert hafði verið rætt við starfsmennina þegar kom á daginn að launin yrðu ekki greidd út. Í kjölfar þess gripu þeir til mótmælaaðgerða og komu í veg fyrir að flutningabíll frá Landsvirkjun kæmist af athafnasvæði Slippstöðvarinnar. "Við þurftum aðgerðir til að fá menn til að funda," segir Þorsteinn. Hann segir að þungt hafi verið í fundarmönnum, en hann giskar á að 70 til 80 starfsmenn hafi verið þar. "Menn voru reiðir og svekktir, sérstaklega yfir því að launamenn skyldu ekki vera upplýstir um stöðu mála. Þetta var ekki nokkur framkoma og þeir viðurkenndu það." Fundurinn átti upphaflega að fara fram fyrr um morguninn, en þegar starfsmennirnir komu til fundarins voru stjórnarformaðurinn og lögfræðingur hans ekki mættir. Þegar náðist í þá gáfu þeir þá skýringu að fjölmiðlar hefðu verið á svæðinu, og var því boðaður nýr fundur sem var lokaður fjölmiðlum. Þorsteinn tók það fram að hann vildi hvorki gagnrýna Landsvirkjun né Landsbankann. "Það verja allir sitt í svona stöðu." Hann sagði óánægjuna fyrst og fremst vera með stjórnendur fyrirtækisins. Þótt starfsmenn Slippstöðvarinnar hafi nú látið af beinum aðgerðum munu þeir áfram fylgjast með athafnasvæðinu. Til greina kemur að grípa aftur til aðgerða eigi að flytja verðmæti af athafnasvæðinu. Ekki náðist í Hilmi Hilmisson, stjórnarformann Slippstöðvarinnar, í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Innlent Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Erlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Innlent Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Erlent Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Fleiri fréttir Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Sjá meira