Nasistaveiðarinn mikli fallinn frá 20. september 2005 00:01
Ógnvaldur nasista númer eitt er fallinn í valinn. Símon Wiesenthal lést í nótt, 96 ára að aldri. Wiesenthal helgaði líf sitt því að koma lögum yfir stríðsglæpamenn úr seinni heimsstyrjöldinni. Símon Wiesenthal dó í svefni í nótt í íbúð sinni í Vínarborg. Það var annar dauðdagi, og hann bar að sextíu árum síðar, en blóðhundar Hitlers ætluðu. Bandarískir hermenn frelsuðu hann úr útrýmingarbúðum nasista árið 1945 og upp frá því vann hann af dæmalausri elju að því að draga morðingja sex milljóna gyðinga í seinna stríði fyrir dómstóla. Marc Regev hjá utanríkisráðuneyti Ísraels sagði í dag að hann hafi verið forvígismaður í því að koma lögum yfir mestu glæpamenn 20. aldarinnar. Símon Wiesenthal vildi réttlæti - ekki hefnd - og þótt hann sé fallin frá heldur Símon Wiesenthal stofnunin í Bandaríkjunum og í Ísrael uppi merki hans; hér á landi höfðum við Mikson-málið; Simon Wiesenthal vissi vel af því. Avner Shalev hjá Helfararsafninu í Jerúsalem segir hann vera tákn siðferðislegrar nauðsynjar til að koma lögum yfir umrædda glæpamenn. Meðal þeirra rúmlega ellefu hundruð stríðsglæpamanna sem Símon Wiesenthal átti þátt í að finna voru SS-foringinn Adolf Eichmann og lögreglumaðurinn sem handtók Önnu Frank. Hann barðist alla sína ævi gegn gyðingahatri og fordómum, nýnasisma og kynþáttahyggju - og vonaði að mannkynið gæti dregið mikilvægan lærdóm af helför gyðinga. Hann sagði eitt sinn á þingi Sameinuðu þjóðanna að tæknin án haturs hefði gert mannkyninu svo mikið gott. „En samtengd hatri leiðir hún til hörmunga.“ Þótt síðasti stríðsglæpamaðurinn úr seinna stríði gefi upp öndina er starfi Wiesenthal-stofnunarinnar er ekki lokið Hún hefur t.d. átt ríkan þátt í að koma lögum yfir stríðsglæpamenn í Rúanda upp á síðkastið. Segja mætti að sagan endurtaki sig, en ekki eru allir bölsýnismenn. Marc Regev sagði í dag að Wiesenthal hefði hjlálpað við að gera þessa jörð.
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira