Naumur sigur stjórnarandstöðu 18. september 2005 00:01
Kristilegir demókratar, flokkur Angelu Merkel, fá flest atkvæði í þingkosningunum í Þýskalandi en ekki nóg til þess að mynda stjórn hægri- og miðflokka, ef marka má útgönguspár sem birtar voru í Þýskalandi fyrir stundu. Stjórn Gerhards Schröders virði því fallin en möguleikar á stjórnarmyndun eru ekki margir. Kjörstöðum var lokað klukkan sex að þýskum tíma, klukkan fjögur að íslenskum tíma, og samkvæmt útgönguspá á vegum sjónvarpsstöðvarinnar ARD fá Kristilegir demókratar, CDU, og systurflokkurinn CSU samtals 35,5 prósent atkvæða. Frjálsir demókratar, sem Merkel sóttist eftir að mynda stjórn með, fá hins vegar 10,5 prósent og það nægir ekki til að mynda meirihluta á þingi. Samkvæmt sömu útgönguspá fá Jafnaðarmenn, flokkur Gerhards Schröders, 34 prósent, samstarfsflokkurinn Græningjar 8,5 prósent og Vinstriflokkurinn 7,5 prósent. Líklegt er talið að Angela Merkel verði næsti kanslari Þýskalands miðað við þessa niðurstöðu en stjórnarmyndunarmöguleikar eru ekki margir. Svo gæti farið að kristilegir demókratar yrðu að mynda stjórn með jafnaðarmönnum, svokallaða stóru samsteypu, en slíkt er talið dauðadómur yfir áformum Merkel um umbætur á vinnumarkaði og skattalöggjöf sem ætlað er að blása lífi í þýskt efnahagslíf. Talning atkvæða í Þýskalandi er þegar hafin en endanlegar niðurstöður kosninganna munu ekki liggja fyrir fyrr en eftir miðnætti í Þýskalandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu Innlent Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Innlent Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Innlent Banaslys í Rangárþingi Innlent Inga vill skóla með aðgreiningu Innlent „Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss Innlent Gular veðurviðvaranir framundan Veður Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Erlent Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Innlent Sviminn hvarf eftir aðgerðina og hækjan horfin Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin og Ísrael verði skotmörk verði ráðist að Íran Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Bandaríkin gerðu loftárásir gegn ISIS í Sýrlandi Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Hverfi Kúrda í Aleppo í herkví Þeir allra ríkustu búnir með „kolefniskvótann“ Meðal möguleika að greiða Grænlendingum milljónir Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Allt bendi til þess að breytingar séu í farvatninu Annar eigandi skemmtistaðarins í Sviss í haldi Verði að eignast Grænland svo Kína og Rússland geri það ekki Tuga saknað eftir ruslskriðu á Filippseyjum Bresk stjórnvöld segja viðbrögð X „móðgandi“ Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Tóku fimmta olíuskipið: Svona virkar „skuggaflotinn“ Stendur fastur fyrir og fordæmir Trump Flytja áhöfn geimstöðvarinnar heim vegna veikinda Hjón skotin af alríkisútsendurum í Portland Takmarka myndaframleiðslu Grok í skugga gagnrýni Segir Bandaríkin þurfa að eignast Grænland, sáttmálar séu ekki nóg Netsambandslaust meðan mótmælt er í Íran Bandaríkin áður mun öflugri á Grænlandi Telur að Evrópa myndi fórna Grænlandi fyrir NATÓ Mikil spenna í Minneapolis eftir banaskot ICE-liða Veikindi geimfara gætu flýtt heimför áhafnar geimstöðvar Segist hafa grænt ljós frá Trump fyrir frekari refsiaðgerðum gegn Rússum Enn mótmælt í Íran og átök að aukast Gervigreind Musk sögð hafa búið til kynferðislegar myndir af ellefu ára gömlum börnum Þingmaður Svíþjóðardemókrata tekin full undir stýri með kókaín í poka Trump-liðar hóta fauta Maduros sömu örlögum eða dauða Sjá meira