Erlent

Blóðugur sólarhringur í Írak

Að minsta kosti 30 manns féllu þegar bílsprengja sprakk á markaði í hverfi Sjíta í skammt frá Bagdad í gærkvöldi. Þá myrtu byssumenn írakskan þingmann í gærkvöldi. Þingmaðurinn, Faris Hussein, féll ásamt þremur lífvörðum sínum, fyrir hendi byssumannanna, en hann var á ferð ásamt öðrum þingmanni, nærri bænum Dujail á leið til höfuðborgarinnar Bagdad. Sá þingmaður særðist í árásinni. Ekki er ljóst hverjir stóðu á bak við tilræðið, en uppreisnarmenn hafa hert árásir sínar í landinu undanfarna daga og hefur á þriðja hundrað manns fallið frá því á miðvikudag. Dagurinn í gær var einn sá blóðugasti í Írak í töluverðan tíma. Auk þeirra 30 sem létu lífið í bílsprengjuárás í hverfi sjíta særðust um fjörutíu manns, þar af margir alvarlega. Bíl, fullum af sprengiefni, hafði verið komið fyrir við ávaxtastand á markaðnum í bænum Nahrawan, sem er í um 30 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni. Hryðjuverkasamtökin al-Qaida í Írak hafa skipulagt ítrekaðar árásir á sjíta, en samtökin hóta frekari árásum. Meira en 200 manns hafa fallið og hundruð særst í árásum al-Qaida að undanförnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×