Íranar haldi áfram framleiðslu 18. september 2005 00:01
Forseti Írans varði rétt Írana til þess að framleiða kjarnorku þegar hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í gær. Vonir manna um sátt í kjarnorkudeilu Írana og vesturveldanna dvínuðu við það og er hugsanlegt að málinu verði skotið til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Ræðu Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, var beðið með nokkurri eftirvæntingu enda búist við að hann legði fram tillögu um lausn í deilu Írana við Bandaríkin og Evrópusambandið um kjarnorkuvopnaáætlun sína. Bandaríkin saka Írana um að reyna að nota áætlunina til þess að koma sér upp kjarnavopnum en Íranar vísa því á bug. Condoloeezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti Írana, í ávarpi sínu til allsherjarþings Sameimuðu þjóðanna, til að leggja kjarnorkuáætlun sína á hilluna auk þess sem Kofi Annan, framkvæmdastjóri samtakanna, varaði við útbreiðslu kjarnavopna. Forseti Írans sagði hins vegar þjóð sína vera í fullum rétti til þess að framleiða kjarnorku og gagnrýndi það sem hann kallaði kjarnorkuaðskilnaðarstefnu þar sem sumum löndum væri heimilt að auðga úran en öðrum ekki. Hann sagði enn fremur að íslam hindraði það að Íranar gætu komið sér upp kjarnorkuvopnum. Íranar féllust á að hætta vinnslu úrans í nóvember í fyrra, en hófu hana aftur fyrir nokkrum vikum. Jack Straw utanríkisráðherra Bretlands, segir að ræða forseta Írans hafi valdið vonbrigðum. Stjórn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar kemur saman í Vín á morgun til að ræða stöðuna og er hugsanlegt að Bandaríkin og ESB standi þá við þá hótun sína að vísa málinu til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira