Erlent

Bjó með látinni móður í fimm ár

Það blasti heldur ófögur sjón við lögreglumönnum í Marseille í Frakklandi á dögunum þegar þeir bönkuðu upp á hjá manni þar í borg vegna uppsafnaðra ógreiddra reikninga. Innan um hauga að drasli fundu þeir lík sem reyndist vera af látinni móður mannsins, en hún hafði verið látin í fimm ár. Ástæðan fyrir því að maðurinn greindi ekki frá því var sú að hann vildi ekki verða af ellilífeyrisgreiðslum móður sinnar og hafði hann m.a. breytt rödd sinni og þóst vera mamma sín í samskiptum við félagsmálayfirvöld á liðnum árum. Maðurinn, sem vann í líkhúsi, á yfir höfði sér ákæru fyrir fjársvik og fyrir að hylma yfir andlát móður sinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×