Erlent

Spenna í Þýskalandi vegna kosninga

Mikil spenna ríkir í Þýskalandi vegna kosninganna til sambandsþingsins sem haldnar verða á morgun. Á lokasprettinum fyrir kosningarnar hefur dregið töluvert saman með stjórn og stjórnarandstöðu og samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er ljóst að á brattan verður að sækja, bæði fyrir Gerhard Schröder, kanslara og leiðtoga Jafnaðarmanna, og Angelu Merkel, leiðtoga Kristilegra demókrata, þar sem gríðarlega margir kjósendur hafa ekki enn gert upp hug sinn. Kosningabaráttan hefur verið mjög hörð í Þýskalandi. Angela Merkel sakar Schröder um svikin loforð og fyrir að bera meðal annars ábyrgð á slæmu ástandi í atvinnumálum þjóðarinnar. Schröder virðist þó sigurreifur og segist reiðubúinn til að verja áfram réttindi landsins. Hann telur að tillögur Merkel í efnahagsmálum muni sundra Þýskalandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×