Gríðarleg reiði í garð stjórnvalda 3. september 2005 00:01
Vörubifreiðar hlaðnar vistum og vopnum komu loks í tugatali til New Orleans í gærkvöld. Gríðarleg reiði ríkir í garð stjórnvalda sem þykja hafa brugðist seint og illa við. Sérfræðingar höfðu spáð nokkuð nákvæmlega fyrir um hvaða afleiðingar fellibylurinn hefði og því þykir undirbúningur neyðaraðstoðarinnar í kjölfarið hafa verið algert klúður. Ásakanir um kynþáttamismunum dynja á Bush Bandaríkjaforseta, en tveir þriðju hlutar íbúa New Orleans eru svartir. Allt að þrjá mánuði gæti tekið að dæla vatninu sem nú flæðir um götur borgarinnar burt. Um milljón manns yfirgaf borgina fyrir fellibylinn að áeggjan borgaryfirvalda en margir höfðu hreinlega ekki efni á því. Einn ellilífeyrisþegi sem beið eftir hjálp á flugvellinum sagðist hafa átt fjóra dali og tuttugu sent eftir af ellilífeyrinum enda komið langt fram í mánuðinn. Með því fé hefði hann ekki getað komist neitt. Svipaða sögu er að segja af stórum hluta þeirra íbúa sem enn hírast inni í fátækrahverfunum og bíða eftir aðstoð. Bush Bandaríkjaforseti heimsótti Alabama og Mississippi í gær og flaug yfir New Orleans. Hann viðurkenndi að neyðaraðstoð á hamfarasvæðunum hefði ekki verið nógu góð þessa fyrstu daga og lofaði bót og betrun. Mat á efnahagstjóni er komið upp í þrettán hundruð milljarða króna.
Erlent Fréttir Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Epstein-skjölin birt Erlent Bindur vonir við Vor til vinstri Innlent Fleiri fréttir Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Sjá meira