Ólgan á Gaza fer vaxandi 15. júlí 2005 00:01
Í odda skarst á milli palestínskra öryggissveita og skæruliða Hamas-samtakanna í Gazaborg í gær og féllu tveir unglingar í bardögunum. Þetta eru verstu átök á milli Palestínumanna í áraraðir. Upptök ólgunnar má rekja til flugskeytaárásar herskárra Palestínumanna á samyrkjubú rétt við landamærin á Gaza á fimmtudaginn sem kostaði ísraelska konu lífið. Bæði Hamas og Al Aqsa samtökin lýstu yfir ábyrgð á því tilræði, að því er virðist til að hefna fyrir aftöku ísraelskra hermanna á Palestínumanni, tengdum Al Aqsa samtökunum. Í gærmorgun réðust palestínskar öryggissveitir inn í Zeitoun-hverfið í Gaza-borg til að klófesta skæruliða sem taldir voru standa fyrir árásunum í fyrrdag. Þær mættu hins vegar mikilli mótspyrnu uppreisnarmanna sem kveiktu í lögreglustöð og nokkrum herjeppum. Tveir táningspiltar, 13 og 17 ára, biðu bana í átökunum og 25 særðust, þar af sex lögreglumenn. Síðar um daginn gerði ísraelski flugherinn loftárás á yfirgefið hús sem skæruliðar höfðu lagt undir sig og fórst einn þeirra í árásinni. Aðgerðir palestínskra yfirvalda benda til stefnubreytingar en þau hafa legið undir ámæli fyrir að taka ekki uppreisnarmenn nógu föstum tökum. Loftárásir Ísraela þykja á hinn bóginn vísbending um að þeir séu að missa trúna á Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar og kjósi að grípa til eigin ráða. Í það minnsta virðist vopnahléið frá því í febrúar standa á brauðfótum.
Erlent Fréttir Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira