Erlent

Pink Floyd saman á ný

Skipuleggjendur Live 8 tónleikanna í London sögðu í gær að breska rokksveitin Pink Floyd myndi koma aftur saman til að spila á tónleikunum sem fara fram í Hyde Park júlí. Hljómsveitina skipa gítarleikarinn David Gilmour, trommuleikarinn Nick Mason, bassaleikarinn Roger Waters og hljómborðsleikarinn Richard Wright en þeir hafa ekki spilað saman á sviði síðan árið 1981 þegar Waters, þáverandi leiðtogi hljómsveitarinnar, hætti. Hljómsveitin sló í gegn árið 1973 með plötunni Dark Side of the Moon, sem er fyrir löngu orðin klassík í rokksögunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×