Erlent

Ráðist á blaðamenn í Eþíópíu

Vopnaðir lögreglumenn í Eþíópíu réðust í dag á blaðamenn og erindreka fyrir utan heimili eins af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í landinu. Sendiherra Dana, sem er kona, var meðal þeirra sem lögreglumennirnir lögðu hendur á. Ógnarástand ríkir í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu síðan lögreglumenn skutu 29 mótmælendur til bana fyrr í vikunni. Sérsveitarmenn lögreglunnar hafa verið á ferðinni að leita að andstæðingum Meles Zenawis forsætisráðherra. Fara ljótar sögur af því hvað gert er við þá andstæðinga forsætisráðherrans sem finnast og jafnvel sagt að þeir hafi verið bútaðir niður. Nokkrir fréttamenn og erindrekar fóru í dag að heimili Hailus Shawuls, eins leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem hefur verið hnepptur í stofufangelsi. Lögreglumenn komu fljótlega á vettvang. Enginn var handtekinn í þessum átökum en nokkrir fréttamannanna voru sárir eftir kylfu og hnefahögg. Mótmælin í Addis Ababa hófust þegar ríkisstjóirnin lýsti yfir sigri í kosningum sem haldnar voru í síðasta mánuði en úrslit hafa enn ekki verið birt. Stjórnarandstaðan hefur nú fallist á að hætta mótmælum til þess að espa ríkisstjórnina ekki frekar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×