Erlent

Enn ósamið um fjárhagsaðstoð

Átta helstu iðnríki heims náðu í dag sögulegu samkomulagi um að fella niður skuldir fátækustu ríkja Afríku. Enn er þó eftir að ná samkomulagi um aukna fjárhagsaðstoð. Samkomulagið sem fjármálaráðherrar iðnríkjanna náðu felur í sér niðurfellingu skulda við alþjóðastofnanir eins og Alþjóðabankans og alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Niðurfellingin nemur um 2500 milljörðum króna. Átján afríkuríki njóta strax góðs af niðurfellingu skulda og tuttugu til viðbótar geta unnið sér rétt til niðurfellingar ef þau uppfylla skilyrði um góða stjórnsýslu. Það myndi hækka niðurfellingu lána um 1000 milljarða króna. Á fundi iðnríkjanna átta náðist hins vegar ekki samkomulag um hvernig skuli einnig tvöfalda efnahagstoð við Afríku. Bretar vilja gefa út skuldabréf með tryggingu í þróunarhjálparsjóðum iðnríkjanna en Bandaríkjamenn og fleiri ríki eru því andvíg. Þá hefur verið velt upp þeim möguleika að leggja sérstakan hjálparskatt á farþegaflug en mörg ríki eru því andvíg. Um þau mál verður væntanlega tekist allt fram því að leiðtogafundur iðnríkjanna verður haldinn í Skotlandi síðar í þessum mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×