Erlent

Fella niður 2600 milljarða skuldir

Átta helstu iðnríki heims hafa náð samkomulagi um að létta skuldum af fátækustu ríkjum Afríku að andvirði 2600 milljarðar króna. Samkomulagið náðist á fundi fjármálaráðherra ríkjanna í Lundúnum í dag en ekki hafði verið búist við því að það næðist á næstu dögum. Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, sagði eftir að samningurinn var í höfn að allar skuldir 18 fátækustu ríkja heims yrðu afskrifaðar nær samstundis. Með þessu vonast ríkin til þess að draga úr neyð í álfunni sem rekja má til fátæktar og sjúkdóma sem draga miljónir til dauða á ári hverju. Bretar höfðu forgöngu um niðurfellingu skuldanna en þeirrra bíður nú erfiðara verkefni, að sannfæra aðrar ríkustu þjóðir heims að tvöfalda fjárhagsstuðning við fátækustu ríki Afríku fyrir fund leiðtoga iðnveldanna átta í Skotlandi í næsta mánuði. Skuldir Afríku reyndust vera 231 milljarður dollara árið 2003 og var þriðjungur þeirra skuldir við alþjóðlegar stofnanir eins og Alþjóðabankann og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Segja hjálparstofnanir að 62 Afríkuríki þurfi algjöra niðurfellingu skulda ef þau þau eigi að uppfylla þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem miða að því að minnka fátækt og sjúkdóma í álfunni um helming fyrir árið 2015.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×