Bretar veðja um kosningaúrslit 5. maí 2005 00:01
Bretar hafa gaman af því að veðja og eitt af því sem þeir hafa veðjað á er veðrið í dag, kosningadaginn, en þeir veðja líka grimmt um úrslit kosninganna og ýmislegt fleira. Warren Lush, veðmangari hjá Ladbrokes, segir þetta einhliða kapphlaup fyrir veðmangarana. Veðhlutfallið sé 1-33 Verkamannaflokknum í hag og því svipað og í kosningunum 2001. Hann segir fólk veðja á íhaldsmenn og frjálslynda en mestu fé sé veðjað á Verkamannaflokkinn. Úrslitin virðist nokkur ljós. Aðspurður hver séu furðulegustu og heimskulegustu veðmálin sem Ladbrokes hafi fengið segir Lush að þau séu mörg. Einn hafi veðjað 150 pundum á það að frjálslyndir sigruðu í kosningunum. Menn hafi litlar áhyggjur af því veðmáli því það gerist aldrei. Charles Kennedy, leiðtogi frjálslyndra, og kona hans hafi eignast barnið Donald í kosningabaráttunni, en sonurinn eigi meiri möguleika, eða 1-100, en faðir hans á að verða forsætisráðherra. Þá hafi fólk veðjað 1-5 að John Prescott, staðgengill forsætisráðherra, kýli einhvern eins og hann hafi gert í síðustu kosningabaráttu, af hvaða ástæðu sem er og hvenær sem er. Lush segir enn fremur að í Bretlandi sé mikið deilt um refaveiðar og Tony Blair sé á móti þeim. Ladbrokes hafi boðið veðmál upp á 1-500 um að hann sæist á refaveiðum áður en niðurstöður kosninganna lægju fyrir.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Erlent Fleiri fréttir Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Sjá meira