Bakiyev býður sig fram til forseta 26. mars 2005 00:01
Efnt verður til forsetakosninga í Kirgistan í júní þar sem Kurmanbek Bakiyev, leiðtogi þeirrar stjórnar sem nú er við völd í landinu, tekst á við Ashkar Akayev sem kosinn var forseti landsins fyrir tæpum mánuði. Bakiyev, sem fór fyrir stjórnarbyltingu í landinu í fyrradag, lýsti því yfir í dag að hann færi fram gegn Akayev í kosningunum. Blaðamannafundur sem ráðgerður var í stjórnarráðinu var fluttur til þegar njósnir bárust um að reynt yrði að bana Bakiyev. Akayev, sem verið hefur við völd í landinu frá árinu 1990, flúði til Rússlands í fyrradag en áréttaði í tölvuskeyti til fjölmiðla í dag að hann væri enn réttkjörinn forseti, þrátt fyrir að hæstiréttur landsins hafi gert úrslit forsetakosninga, sem fram fóru í síðasta mánuði, ómerk og nýir valdhafar hafi tekið við stjórnartaumum í landinu. Þá hafa Rússar ákveðið að starfa með stjórnarandsöðunni, fari leiðtogi hennar með sigur af hólmi í kosningunum í júní, en ekki er búist við að miklar breytingar verði á stjórnarháttum í landinu, hvernig sem úrslitin verða. Það var rólegt um að litast höfuðborginni í dag en síðustu sólarhringa hafa glæpagengi nýtt sér ringulreiðina og hafa farið um verslanir ruplandi og rænandi. Innanríkisráðherra landsins hefur ekkert viljað gefa upp um fjölda þeirra sem látist hafa í átökum í borginni en talið er að að minnsta kosti þrír hafi látist í átökum á götum úti í nótt og tugir særst.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira