Stjórnarmenn og makar fengu laun 23. mars 2005 00:01
Nálega helmingur þeirra sem fengu úthlutað árslaunum úr Launasjóði myndlistarmanna í ár er í stjórn Sambands íslenskra myndlistarmanna eða í sambúð með meðlimum úthlutunarnefndar. Formaður úthlutunarnefndar segist ekki vita hverjir séu í stjórninni sem tilnefndi hann í nefndina. Listamannalaunum var úthlutað fyrir mánuði. Rúmlega 230 sóttu um laun myndlistarmanna en einungis 30 slík laun voru til skiptanna. Athygli vekur að úthlutunarnefndin veitti þremur stjórnarmönnum úr Sambandi íslenskra myndlistarmanna laun, en það voru einmitt þeir menn sem skipuðu í úthlutunarnefndina. Þessum þremur stjórnarmönnum voru veitt árslaun en tíu slík voru til skiptanna. Þá veitti úthlutunarnefndin eiginmanni formanns stjórnarinnar laun til sex mánaða og þar að auki var sambýliskonu eins meðlima úthlutunarnefndarinnar úthlutað launum til eins árs. Það par hefur reyndar fengið árslaun til skiptis síðastliðin þrjú ár. Kristinn G. Harðarson, formaður úthlutunarnefndar, segir að kannski líti þetta ekki vel út en hann hafi ekki vitað hverjir hafi verið í stjórn Sambands íslenskra myndlistarmanna. Formaður sambandsins hafi haft samband við hann og spurt hann hvort hann vildi vera í nefndinni og svo hafi hann fengið bréf frá menntamálaráðuneytinu sem hafi staðfest það. Hann hafi ekki vitað hverjir hafi verið í stjórninni. Tryggvi Ólafsson, sem er einn þekktasti listamaður þjóðarinnar, sótti um listamannalaun og fékk synjun. Ferill Tryggva spannar áratugi og hefur hann einu sinni fengið listamannalaun. Einn stjórnarmanna í Sambandi íslenskra myndlistarmanna sagðist í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í dag skammast sín fyrir kollega sína fyrir að hafa synjað umsókn listamanns á borð við Tryggva. Kristinn segir að Tryggvi sé mjög frambærilegur listamaður og það séu líka ýmsir sem hefðu átt að fá listamannalaun. Hann geti ekki svarað þessu öðruvísi.
Fréttir Innlent Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Erlent Fleiri fréttir Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Sjá meira