Innlent

Líti á flóðbylgjuna sem viðvörun

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði á ráðstefnu í Indlandi í dag að líta ætti á hörmungarnar í Asíu um jólin sem viðvörun um það sem gæti gerst ef yfirborð sjávar myndi hækka. Indverskir fjölmiðlar segja Ólaf Ragnar hafa lagt línuna fyrir aðra ræðumenn á þriggja daga ráðstefnu um efnahagsmál og sjálfbæra þróun sem haldin er um helgina. Þeir segja Ólaf hafa sagt þeim, sem vísa hrakspám um hugsanleg áhrif gróðurhúsaloftegunda á veðurfar á bug, að heimsækja Ísland. Snjóatímabil á Íslandi hefði styst um mánuð á mjög skömmum tíma og ljóst væri að veðurfar jarðarinnar væri að breytast.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×