Innlent

Önnur stjórn væri möguleg

"Það sem ég staldra fyrst við er sú staðreynd að samkvæmt þessari könnun gæti stjórnarandstaðan myndað ríkisstjórn með bærilegum meirihluta ef þetta væru úrslit í kosningum," segir Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstri-grænna. "VG er samkvæmt þessari könnun að auka fylgi sitt frá síðustu kosningum. En á hinn bóginn dölum við heldur sé litið til síðustu skoðanakönnunar Fréttablaðsins. En við látum það ekki slá okkur út af laginu."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×