Innlent

Sjálfstæðismenn vilja launanefnd

Sjálfstæðismenn í minnihluta bæjarráðs Hafnarfjarðar mótmæltu í gær staðhæfingu Starfsmannafélags Hafnarfjarðar um að bæjarstjórnin standi að grjótharðri láglaunastefnu með því að eiga aðild að launanefnd sveitarfélaga. Starfsmannafélagið hefur óskað þess að bærinn semji sjálfstætt við félagsmenn. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir bæjarráð hafa ákveðið að senda erindi þess til starfskjaranefndar eftir fund ráðsins í gær. Þar komi fulltrúar bæjayfirvalda og starfsmanna að málinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×