Plássið minnkar í flugvélum 10. júní 2005 00:01
Það er lítið pláss á almennu farrými hjá flestum flugfélögum og miðað við nýjustu breytingar er hætt við að munurinn á farþegaflutningum og hreinum gripaflutningum snarminnki á næstunni. Það er þröngt og að jafnaði ekki sérstaklega notalegt hjá þeim ferðalöngum sem ferðast á almennu farrými en hingað til hefur þó í það minnsta verið hægt að fá teppi, kodda og samloku á leiðinni. En ekki lengur, samkvæmt fréttum New York Times. Innanlandsflug vestan hafs er orðið sambærilegt við ferðalög með rútum því það er ekkert í boði annað en þröngt sætið. Flugfélagið Northwest ákvað í gær að hætta að bjóða farþegum upp á saltstangir sem kosta þó aðeins nokkrar krónur pokinn. Flestir bjóða enn upp á ókeypis drykki en ekki er talið víst að það verði gert mikið lengur. Annars staðar, eins og til dæmis í Ástralíu, hafa flugfélög fundið leið til að græða meira með því að rukka farþega um hærra fargjald fyrir að sitja í fremstu röðinni í vélinni og við neyðarútganga þar sem meira rými er fyrir fætur. Víða, eins og til dæmis hjá Icelandair, eru seldar auglýsingar á borðunum sem farþegar setja matinn sinn á - þar sem hann er enn í boði. Sérfræðingar í ferðamálum í Bandaríkjunum segja kaldhæðnina í þessu þá að lággjaldaflugfélögin bjóði nú farþegum á almennu farrými oftar en ekki meiri og betri þjónustu en hin flugfélögin. Sætarými sé síst minna, sætin jafnvel betri og koddar, teppi, drykkir og saltstangir séu þar í boði. Þessi flugfélög séu einfaldlega rekin á öðrum forsendum og skili hagnaði ólíkt hinum sem eru vel flest á hausnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Sjá meira