Eldflaugum ringdi 27. desember 2005 18:58
Mahmúd Abbas, leiðtogi Palestínumanna, stendur höllum fæti vegna stöðugra árása byssumanna á opinberar skrifstofur heimastjórnarinnar. Í dag létu Ísraelar eldflaugum rigna yfir höfuðstöðvar þessara byssumanna og segja óþolandi að Abbas geti ekki haldið þeim í skefjum. Tugir vopnaðra liðsmanna Al Alsa samtakanna hertóku í dag skrifstofur héraðsstjórans á Gaza svæðinu, menntamálaráðuneytið og dómshús. Mennirnir voru vopnaðir handsprengjum og hríðskotarifflum. Palestinskir lögreglumenn fylgdust með árásinni, en aðhöfðust ekkert, að sögn sjónarvotta. Byssumennirnir sögðust hafa hertekið byggingarnar til þess að leggja áherslu á kröfur sínar um atvinnu. Eftir nokkurra klukkustunda samningaviðræður, í gegnum sína, yfirgáfu þeir húsin. Þeir sögðust hafa fengið loforð um að kröfur þeirra yrðu teknar til athugunar. Þetta er ein af mörgum slíkum árásum undanfarna daga, og þær eru farnar að grafa undan trúverðugleika Mahmúd Abbasar, leiðtoga Palestínumanna. Hann hefur verið sakaður um undanlátssemi við byssumennina. Þótt lögreglumenn hafi umkringt byggingar sem þeir hafa hertekið, hafa þeir ekkert gert til þess að handtaka þá. Ísraelar segja að það sé óþolandi að Abbas skuli ekki hafa neina stjórn á herskáum liðsmönnum sínum, sem hafa skotið fjölmörgum eldflaugum á Ísraelskar byggðir, frá Gaza, undanfarna daga. Ariel Sharon, forsætisráðherra, hefur fallist á að sett verði upp öryggisbelti á Gaza, til þess að koma í veg fyrir árásirnar. Ísraelski herinn skaut, í dag, bæði fallbyssuskotum og eldflaugum að búðum Al aksa, á Gaza svæðinu, og hitti tvennar þeirra, en ekki er vitað um mannfall.
Erlent Fréttir Mest lesið Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Witkoff fundar með Selenskí Erlent „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Innlent Fleiri fréttir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Telur það landráð að skrifa um heilsu sína Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Selenskí segist reiðubúinn til að boða til kosninga Samfélagsmiðlabannið hefur tekið gildi í Ástralíu Forsetafrúin kallaði mótmælendur heimskar tíkur Blaðamannafundi aflýst og óvíst hvort Nóbelsverðlaunahafinn mæti Heimilar birtingu gagna úr rannsókn á Maxwell Sjá meira