Erlent

Reyndu að sprengja upp stíflu

Tuttugu uppreisnarmenn voru handteknir í Suður-Afganistan í morgun þegar þeir reyndu að sprengja stíflu í loft upp. Stíflan er sú strærsta í landinu og við hana er virkjun sem sér einni stærstu borg Afganistans, Kandahar, fyrir raforku. Að sögn lögreglu voru vopn og sprengiefni gerð upptæk við handtökurnar. Töluverð spenna er í Afganistan þessa dagana enda eru þingkosningar þar á morgun og hafa uppreisnarmenn úr röðum talibana hótað því að trufla þær eins og þeir geti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×