Dómarinn fékk orð í eyra 29. nóvember 2005 07:00 @Mynd -FoMed 6,5p CP:Ramsey Clark Clark var dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Lyndons B. Johnson á sjöunda áratug síðustu aldar. Í dag er hann hins vegar lítill vinur ráðamanna í Washington. fréttablaðið/AP
Aðalmeðferð málaferlanna gegn Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, hófst í gær og rétt eins og við þingfestinguna í síðasta mánuði reifst Saddam og skammaðist við starfsmenn dómsins. Réttarhöldunum var frestað til 5. desember svo finna mætti tveimur sakborninganna nýja verjendur í stað þeirra sem voru myrtir á dögunum. Saddam og sökunautar hans eru ákærðir fyrir að bera ábyrgð á drápi á 148 sjíum í bænum Dujail í hefndarskyni fyrir að reyna að ráða forsetann af dögum sumarið 1982. Verði þeir fundnir sekir er líklegt að þeirra bíði gálginn. Við þingfestinguna 19. október kvaðst Saddam saklaus af öllum ákæruliðum. Það gustaði af einræðisherranum fyrrverandi þegar hann gekk inn í réttarsalinn í gær, íklæddur dökkum jakkafötum og með Kóraninn í handarkrikanum. Um leið og hann hafði komið sér fyrir í stúku sinni hellti hann sér yfir Mohammed Amin aðaldómara af því að hann hafði þurft að ganga upp fjórar hæðir með járnhlekki á fótunum í fylgd erlendra varðmanna. Þegar Amin lofaði að biðja þá um að láta þetta ekki endurtaka sig svaraði Saddam hvefsinn: "Ég vil ekki að þú biðjir þá um neitt, þú átt að skipa þeim. Þeir réðust inn í landið og hertóku það og þú ættir því að skipa þeim." Því næst skammaðist hann yfir að skjöl hans og skriffæri hefðu verið tekin af honum en þegar hér var komið sögu rofnaði sjónvarpsútsending frá þessu sjónarspili. Al-Jazeera bendir á að bandaríska fyrirtækið sem sér um útsendingarnar fyrir írösku stjórnina sendi út með hálftíma seinkun svo grípa megi inn í telji valdhafarnir að Saddam fari yfir strikið. Það virðist hafa gerst í gær. Hálfbróðir Saddams, Barazan Ibrahim, er einnig á meðal sakborninga og kvartaði hann sáran yfir að hafa ekki fengið viðhlítandi læknismeðferð eftir að í ljós kom að hann hefði greinst með krabbamein. Vanræksluna sagði hann jafngilda "óbeinu morði". Þegar öllum skömmum var lokið minntust viðstaddir lögmanna tveggja sakborninga sem myrtir voru á dögunum og því næst var myndbandsupptaka leikin sem sýnir Saddam í Dujail örskömmu eftir fjöldamorðin. Að lokum frestaði Amin dómari réttarhöldunum til 5. desember svo skipa mætti nýja verjendur í stað þeirra sem var banað. Í verjendaliði Saddams í gær voru þeir Najib al-Nuaimi og Ramsey Clark, fyrrverandi dómsmálaráðherrar Katar og Bandaríkjanna. Clark gegndi embætti sínu í forsetatíð Lyndon B. Johnson á sjöunda áratugnum en í seinni tíð hefur hann skorið upp herör gegn því sem hann kallar heimsvaldastefnu Vesturlanda með Bandaríkin í broddi fylkingar. Hann hefur veitt lögfræðilega ráðgjöf mönnum á borð við Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, og Charles Taylor, fyrrverandi Líberíuforseta. Niazer al-Samaraei blaðamaður sagði í viðtali við al-Jazeera að með ráðgjöf og nærveru Ramsey vonaðist Saddam og menn hans til að réttarhöldin myndu snúast um lögfræði en ekki stjórnmál. Miklar öryggisráðstafanir voru gerðar við réttarsalinn, sem er á græna svæðinu svonefnda í Bagdad. Þannig var ekkert látið uppi um hvenær dómhald hæfist til að draga úr hættunni á að ráðist yrði á sakborninga og dómara. Í fyrradag greindu yfirvöld frá því að átta súnníar hefðu verið handteknir vegna gruns um samsæri um að myrða einn af rannsóknardómurum réttarins. Landsmenn fylgjast að vonum grannt með framvindunni. Í heimaborg Saddams, Tikrit, komu stuðningsmenn hans saman á meðan ættingjar fórnarlambanna í Dujail kröfðust þess að hann yrði hengdur.
Erlent Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira