Hundruð flugferða falla niður 12. ágúst 2005 00:01
Tugþúsundir farþega British Airways eru strandaglópar vegna skyndiverkfalla á Heathrow-flugvelli. Félagið hefur þurft að fella niður hundruð flugferða fyrir vikið. Ástæðan þessara vandræða var skyndilegt samúðarverkfall um eitt þúsund flugvallarstarfsmanna sem mótmæltu uppsgögnum starfsmanna hjá Gate Gourmet, alþjóðlegu fyrirtæki sem sér meðal annars um flugvélamat hjá British Airways. British Airways flýgur um 550 ferðir til og frá Heathrow á degi hverjum og ferðast yfir eitt hundrað þúsund farþegar með vélum félagsins. Mikið umstang var við að koma strandaglópum fyrir á hótelum í London í nótt og segja talsmenn félagsins að það hafi tapað gríðarlegum upphæðum á aðgerðum starfsmanna. Ástandið var ekki betra í morgun og ljóst að ekkert flug verður frá Heathrow á vegum British Airways fyrr en í fyrsta lagi eftir klukkan fimm í dag. Málið er álitshnekkir fyrir flugfélagið sem hefur áður lent í vandræðum vegna skyndiverkfalla starfsfólks. Markaðssérfræðingar segja orðspor félagsins skaðast verulega og að farþegar hljóti að velta fyrir sér hvers vegna starfsfólk British Airways fari í verkfall vegna uppsagna fólks hjá allt öðru fyrirtæki. Slíkt sé til þess fallið að draga úr trausti farþega á félaginu.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Innlent Fleiri fréttir Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Sjá meira