Erlent

Sprengjutilræði í Suðvestur-Íran

Að minnsta kosti átta létust og 36 særðust, þar á meðal konur og börn, þegar fjórar sprengjur sprungu við stjórnarbyggingar í olíubænum Ahvaz í suðvesturhluta Írans í dag. Sprengjurnar sprungu á tveggja klukkustunda tímabili og mistókst sprengjusérfræðingum að aftengja fjórðu sprengjuna eftir að hinar þrjár höfðu sprungið. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu en lögregluyfirvöld í héraðinu sögðu tilræðismenninan reyna að hræða fólk frá því að taka þátt í forsetakosningum sem fram fara í landinu á föstudaginn kemur. Spenna hefur verið mili þjóðarbrota á svæðinu að undanförnu og til að mynda létust fimm og 300 hundruð voru handteknir í óeirðum í apríl síðastliðnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×