Ítalir kjósa um frjósemislög 12. júní 2005 00:01
Ítalir ganga nú til þjóðaratkvæðagreiðslu til að skera úr um hvort fella eigi úr gildi lög sem setja hömlur á frjósemisaðgerðir. Vatíkanið hefur tekið fullan þátt í kosningaherferðinni. Síðustu viku hefur Vatíkanið att kappi við þá sem segja núgildandi lög hamla framþróun í vísindum og brjóta á réttindum þeirra sem þurfa að gangast undir frjósemisaðgerðir. Því má segja að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar gefi vísbendingu um þau völd sem rómversk-kaþólska kirkjan hefur í Ítalíu. Lögin sem um ræðir tóku gildi á síðasta ári. Þau takmarka fjölda fósturvísa í tæknifrjóvgun við þrjá, meina fólki að leita til sæðis- og eggjgjafa til að eignast börn, banna frystingu fósturvísa og alfarið að á þeim séu framkvæmdar rannsóknir. Lögin hafa verið afar umdeild og eftir að fimm hundruð þúsund undirskriftum var skilað inn í september á síðasta ári féllst Hæstiréttur Ítalíu á að ítalskir kjósendur gætu bundið enda á þessar takmarkanir. Kaþólska kirkjan, sem er andvíg frjósemisaðgerðum og stofnfrumurannsóknum, vill að lögin verði áfram í gildi. Ítalskir biskupar hafa hvatt fólk til að sniðganga atkvæðagreiðsluna, með íhlutun og samþykki Benedikts páfa, en meira en helmingur atkvæðisbærra manna þarf að greiða atkvæði sitt svo niðurstaða kosninganna verði gild. Kirkjan hefur sitt á hreinu en skiptar skoðanir eru á málinu meðal stjórnmálamanna, sama hvaða flokki þeir tilheyra. Flestir hafa komið þeim skilaboðum til kjósenda að láta samvisku sína ráða gjörðum í kjörklefanum. Forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, hefur ekkert viljað gefa upp um það hvort eða hvernig hann mun kjósa. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Romano Prodi, hefur sagst munu greiða atkvæði en hefur ekkert gefið uppi um skoðanir sínar á þessu umdeilda máli. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar mun liggja fyrir seinni partinn á morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira