Erlent

Skutu barn til bana

Fjórir grímuklæddir byssumenn tóku tugi barna í gíslingu í alþjóðlegum skóla nærri Ankor Wat hofunum í Kambódíu í gær. Mennirnir skutu eitt barnið, þriggja ára gamlan kanadískan strák til bana því hann grét of mikið. Gíslatökumennirnir kröfðust lausnargjalds, vopna og farartækis sem lögreglan lofaði þeim að lokum en þegar þeir voru komnir inn í bílinn með fjögur barnanna með sér réðst sérsveit til atlögu við þá og yfirbugaði. Við yfirheyrslur sögðust mennirnir hafa gripið til aðgerðanna vegna fátæktar og að þeir hafi ætlað sér að græða á börnum ríkra útlendinga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×