Erlent

Merkel bíða mörg verkefni

Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður næsti kanslari Þýskalands ef marka má útgönguspár eftir þingkosningar. Hennar bíða mörg verkefni. Holger Schmidt-Denker, pólitískur fréttamaður á N-tv, segir að það megi reikna með því að þeim málum sem Merkel hafi kynnt í kosningabaráttunni muni hún hrinda í framkvæmd, þ.e. að skapa fleiri störf. Það verði spennandi að fylgjast með hvernig henni takist til og hún verði metin út frá þessu. Schmidt-Denker segir að Merkel verði ekki gefinn sá tími sem Schröder hafi haft frá árinu 1998. Hún þurfi að sýna fram á árangur mjög fljótt, annars muni hún standa frammi fyrir miklum erfiðleikum, bæði gagnvart þjóðinni og eigin flokki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×