Erlent

Vinna að ályktun vegna Írans hafin

MYND/AP
Evrópusambandsríkin þrjú sem staðið hafa í samningaviðræðum við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra hafa þegar hafið vinnu að ályktun um að vísa málinu til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir erindreka innan ESB sem vinnur að málinu. Forseti Írans varði í gær rétt Írana til þess að framleiða kjarnorku þegar hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, en Bandaríkin saka Írana um að reyna að nota áætlunina til þess að koma sér upp kjarnavopnum. Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hafa fyrir hönd Evrópusambandsins reynt að miðla málum en nú virðast þjóðirnar hafa misst þolinmælina og því er búist við að lögð verði fram ályktun á fundi stjórnar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar á morgun um að málinu verði vísað til öryggisráðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×