Erlent

Breskir lögreglumenn of skotglaðir

Margir breskir lögreglumenn eru svo skotglaðir að þeir ættu ekki að bera skotvopn. Þetta fullyrðir fyrrverandi breskur hermaður í viðtali við blaðið Sunday Times í dag, en hann gegnir því starfi að þjálfa lögreglumenn. Hann segir að um leið og þrýstingur aukist á lögreglumennina í starfi, til dæmis í hættuástandi, og adrenlínið flæði um líkama þeirra, þá gleymi þeir hlutverki sínu sem laganna verðir. Það geti haft skelfilegar afleiðingar eins og kom í ljós fyrr í sumar eftir hryðjuverkaárásirnar í Lundúnum þegar lögreglumenn skutu ungan Brasilíumann margsinnis í höfuðið vegna gruns um að hann væri hryðjuverkamaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×