Erlent

Trausti lýst á stjórnina

Yfirgnæfandi meirihluti íraskra þingmanna lýsti yfir trausti á ríkisstjórn Ibrahim al-Jaafari en slík yfirlýsing var á dagskrá þingsins í gær. Stjórnin hefur átt undir högg að sækja að undanförnu þar sem henni hefur ekki tekist að slökkva ófriðarbálið sem geisar í landinu þrátt fyrir að hafa sagt að það væri hennar helsta verkefni. Yfir þúsund manns hafa fallið síðan hún tók við völdum 28. apríl síðastliðinn. Miklar deilur hafa staðið á íraska þinginu að undanförnu um hlut súnnía í stjórnarskárgerðinni en þeir telja sig bera skarðan hlut frá borði í stjórn landsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×