Erlent

Rúandskir flóttamenn sendir heim

Ráðamenn í Búrúndí hafa sent nauðuga heim 3.600 flóttamenn frá Rúanda. Sameinuðu Þjóðirnar og samtökin Læknar án landamæra segja að yfirvöld í Búrúndí hafi meinað þeim aðgöngu að flóttamannabúðunum þar sem flóttamennirnir bjuggu áður. Að sögn friðargæsluliða slösuðust flóttamenn við að reyna að stökkva af pallbílum sem keyrðu þá yfir landamærin. Flóttamennirnir hafa sennilega ekki viljað aftur til Rúanda þar sem margra þeirra bíður lítið annað en ævilöng fangelsisvist eða jafnvel dauðadómur vegna voðaverkanna sem unnin voru í Rúanda árið 1994.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×