Erlent

Ellefta eiginkona konungsins

Konungur Svasílands hefur gengið að eiga tvítuga jómfrú sem er ellefta eiginkona hans. Svasíland er sjálfstætt smáríki í Suður-Afríku. Maswati konungur er einvaldur í landi sínu og allir þegnarnir sitja og standa eins og hann vill. Hinn þrjátíu og sjö ára gamli konungur hefur verið gagnrýndur fyrir að lifa í vellystingum pragtuglega meðan tveir þriðju þegna hans búa við sára fátækt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×