Erlent

Ofsaveður í Taívan og Mexíkó

Mjög öflugir stormar leika nú bæði Mexíkó og Taívan grátt. Fellibylurinn Emily gengur nú sem stendur yfir Cancun í Mexíkó og hvirfilbylurinn Haitang ber að norðausturströnd Taívans. Emily sló út rafmagni, reitti tré upp með rótum og blés öldum langt inn til lands í Cancun í morgun en töluvert hefur dregið úr mætti hennar eftir að hún kom yfir land. Þúsundir ferðamanna neyddust til að flýja fellibylinn og hafast við í neyðarskýlum, en engar fregnir hafa borist af manntjóni. Alls hafa um hundrað og þrjátíu þúsund ferðamenn þurft að færa sig um set í Mexíkó síðan um helgina vegna fellibylsins og þar sem flugvöllum á svæðinu var lokað gátu margir þeirra sem hugðust yfirgefa svæðið hvergi farið. Hópur íslenskra unglinga er á staðnum, í bænum Merida, fólk sem tekur þátt í ólympíuleikunum í stærðfræði. Sautján manns hafa slasast í vonskuveðri í Taívan, þar sem hvirfilbylurinn Haitang gengur yfir. Úrhellisrigning er í Taipei, höfuðborg Taívans, og hafa yfirvöld látið loka skólum, opinberum stofnunum og fjármálamörkuðum. Í vindhviðum hafa tré og auglýsingaskilti farið á loft og valdið skemmdum. Götur borgarinnar eru nánast auðar en flestir höfðu búið sig undir storminn, keypt matarbirgðir og rafhlöður og neglt niður dyr og glugga. Í norðausturhluta landsins féll nærri metri af rigningu í fjallendi og er óttast að þar geti flóð og aurskriður valdið tjóni. Haitang fer hægt yfir og því hætt við að hann geti valdið miklum usla eftir því sem hann þokast nær landi, en vindhraðinn er um fimmtíu metrar á sekúndu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×