Ofsaveður í Taívan og Mexíkó 18. júlí 2005 00:01
Mjög öflugir stormar leika nú bæði Mexíkó og Taívan grátt. Fellibylurinn Emily gengur nú sem stendur yfir Cancun í Mexíkó og hvirfilbylurinn Haitang ber að norðausturströnd Taívans. Emily sló út rafmagni, reitti tré upp með rótum og blés öldum langt inn til lands í Cancun í morgun en töluvert hefur dregið úr mætti hennar eftir að hún kom yfir land. Þúsundir ferðamanna neyddust til að flýja fellibylinn og hafast við í neyðarskýlum, en engar fregnir hafa borist af manntjóni. Alls hafa um hundrað og þrjátíu þúsund ferðamenn þurft að færa sig um set í Mexíkó síðan um helgina vegna fellibylsins og þar sem flugvöllum á svæðinu var lokað gátu margir þeirra sem hugðust yfirgefa svæðið hvergi farið. Hópur íslenskra unglinga er á staðnum, í bænum Merida, fólk sem tekur þátt í ólympíuleikunum í stærðfræði. Sautján manns hafa slasast í vonskuveðri í Taívan, þar sem hvirfilbylurinn Haitang gengur yfir. Úrhellisrigning er í Taipei, höfuðborg Taívans, og hafa yfirvöld látið loka skólum, opinberum stofnunum og fjármálamörkuðum. Í vindhviðum hafa tré og auglýsingaskilti farið á loft og valdið skemmdum. Götur borgarinnar eru nánast auðar en flestir höfðu búið sig undir storminn, keypt matarbirgðir og rafhlöður og neglt niður dyr og glugga. Í norðausturhluta landsins féll nærri metri af rigningu í fjallendi og er óttast að þar geti flóð og aurskriður valdið tjóni. Haitang fer hægt yfir og því hætt við að hann geti valdið miklum usla eftir því sem hann þokast nær landi, en vindhraðinn er um fimmtíu metrar á sekúndu.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira