Hundruð barna seld í vændi í Svíþjóð 28. nóvember 2005 20:54
Lögreglan í Svíþjóð handtók í gær kínverskt par sem er grunað um mansal í stórum stíl. Talið er að hundruð barna og ungmenna hafi verið seld í vændi og líffæri numin úr þeim. Börnin og ungmennin sem um ræðir voru flest send í flóttamannabúðir í Gimo í Norður-Svíþjóð eftir komuna til landsins. Þar vöktu þau athygli varða og yfirvalda þar sem þau voru óhrædd og neituðu undantekningalítið að svara spurningum; sögðust vera komin til Svíþjóðar sem pólitískir flóttamenn og ættu enga ættingja. Eftir komuna til Gimo tóku ungmennin upp á því að fara í göngutúra og einn daginn komu þau ekki til baka. Yfirvöld hófu að kanna málið og handtóku í gær kínverskt par sem er talið höfuðpaurar smyglhrings sem flutti börnin frá Kína til Svíþjóðar. Talið er víst að skipulagður glæpahringur sé á bak við mansalið og segja sænskir fjölmiðlar næsta víst að innan skamms verði flett ofan af kínverskri mafíu í Svíþjóð. Börnin voru vel klædd, með samskonar gemsa og með Schengen-áritun frá ítalska sendiráðinu í Búdapest, þó að þau afi aldrei komið til Ungverjalands. Ungmennin fengu skilaboð með SMS-sendingum um hvernig þau ættu að komast frá Gimo, með lest og rútu. Talið er að þau séu nú á um alla Evrópu og í Bandaríkjunum, ýmist sem ólöglegt vinnuafl eða að þau hafi jafnvel verið seld í vændi og líffæri numin úr þeim. Engar vísbendingar eru um að þessi glæpahringur teygi anga sína hingað til lands en að sama skapi er ljóst að svipaðir hringar hafi reynt að nota Keflavíkurflugvöll sem millilendingarstað fólks á leið til áfangastaða vestan hafs.
Erlent Fréttir Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira