Erlent

Prófkjöri frestað vegna mótmæla

Konur kjósa í prófkjöri Fatah áður en því var frestað vegna óróa.
Konur kjósa í prófkjöri Fatah áður en því var frestað vegna óróa. MYND/AP

Fatah-hreyfing Mahmouds Abbas, forseta Palestínu, frestaði fyrir skemmstu prófkjöri sínu á Gazaströndinni eftir að vopnaðir fylgismenn hreyfingarinnar þustu inn á kjörstaði og lokuðu þeim. Mennirnir sögðu að þúsundir nafna vantaði á kjörskrár og þannig væri komið í veg fyrir að fjöldi fólks gæti kosið.

Kjósa átti frambjóðendur Fatahhreyfingarinnar fyrir þingkosningar sem fram fara í byrjun næsta árs. Þá etur Fatah kappi við Hamasliða sem er spáð góðum árangri í kosningunum. Í kjölfar atburðanna í dag gaf yfirmaður kjörstjórnar út að prófkjörið yrði ógilt og efnt til nýs prófkjörs síðar.

Aðgerðir mannanna eru áfall fyrir Abbas sem hefur reynt að ná tökum á Gaza eftir að Ísraelar hurfu þaðan á brott í september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×