Réttað í Haag í Vukovar-máli 11. október 2005 00:01
Réttarhald hófst í gær fyrir Stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag í máli þriggja fyrrverandi foringja úr júgóslavneska hernum, sem ákærðir eru fyrir vísvitandi fjöldamorð á að minnsta kosti 264 flóttamönnum, sjúklingum og starfsfólki á sjúkrahúsi í bænum Vukovar í Króatíu árið 1991. Vukovar-fjöldamorðin kyntu mjög undir þeim vítahring hatursfullra borgarastríðsátaka sem hlutalýðveldi gamla júgóslavneska sambandsríkisins steyptust í á þessum tíma og enduðu með upplausn ríkisins. Tveir sakborninganna þriggja endurtóku yfirlýsingar um sakleysi sitt fyrir réttinum í gær og skoruðu á dómarana að finna sannleikann að baki grimmdarverkinu og góma þá sem í raun báru ábyrgð á því. Sakborningarnir, Mile Mrksic, Miroslav Radic og Veselin Sljivancanin, eru allir Serbar, Meðal ákæruatriða eru ofsóknir, útrýming, morð og pyntingar. Sljivancanin stýrði umsátri hersins um Vukovar, sem stóð í þrjá mánuði og kostaði að minnsta kosti 1.700 Króata lífið. Bærinn, sem státaði af mörgum miðaldabyggingum, var lagður í rúst. Á síðustu dögum umsátursins fluttu serbneskir hermenn um 400 manns, sem leitað höfðu skjóls fyrir átökunum í sjúkrahúsi bæjarins, út í sveit í rútum. Eftir barsmíðar og pyntingar voru flestir þeirra skotnir og grafnir í fjöldagröf. Í máli saksóknara kom fram að sakborningarnir væru taldir hafa reynt að hrinda í framkvæmd skipun serbneska hershöfðingjans Vojislavs Seselj um að "enginn ústasja [skammaryrði Serba yfir Króata] skyldi sleppa lifandi frá Vukovar".
Erlent Fréttir Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Innlent Fleiri fréttir Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Sjá meira