Saddam hefur kosningarétt 11. október 2005 00:01
Rósturnar í Írak stigmagnast eftir því sem nær dregur þjóðaratkvæðagreiðslunni um stjórnarskrárdrög landsins en hátt í fimmtíu manns létust í hryðjuverkaárásum í gær. Íraskir embættismenn hafa greint frá því að Saddam Hussein geti neytt atkvæðisréttar síns á laugardaginn. Uppreisnarmenn í Írak hafa heitið því að valda sem mestum usla í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar um helgina og í gær sýndu þeir að þeim væri alvara. Þrjátíu borgarar biðu bana í tilræði í bænum Tal Afar, nærri sýrlensku landamærunum, í gær en þá ók kona bíl fylltum sprengiefni á markaðstorg bæjarins. 388 hafa beðið bana síðastliðnar tvær vikur í árásum uppreisnarmanna. Undirbúningur fyrir kjörfundinn er í fullum gangi og í gær greindi Abdul Hussein Hindawi, einn kjörstjórnarformannanna, frá því að Saddam Hussein gæti neytt atkvæðisréttar síns, rétt eins og aðrir fangar sem ekki hafa hlotið dóm. Réttarhöld yfir einræðisherranum fyrrverandi hefjast 19. október næstkomandi. Þá skýrði breska ríkisstjórnin frá því í gær að hún hygðist greiða skaðabætur vegna manntjóns og eignaspjalla sem urðu þegar breskir hermenn réðust inn á lögreglustöð í Basra í síðasta mánuði og frelsuðu tvo félaga sína sem þar voru í haldi. Fimm borgarar létust í þeirri árás.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira