Stefna ráðherra vegna Íraksstríðs 11. október 2005 00:01 MYND/Reuters
24 Danir hafa stefnt Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, sem fulltrúa ríkisins fyrir að hafa brotið stjórnarskrána með aðild Danmerkur að innrásinni í Írak fyrir um tveimur og hálfu ári. Eftir því sem kemur fram á fréttavef danska blaðsins Politiken eru helstu rök ákærendanna þau að með breytingum á stjórnarskrá Danmerkur árið 1953 hafi ákvarðanir um árás á annað ríki verið færðar til Sameinuðu þjóðanna. Þetta þýði að mati hópsins að ekki megi beita valdi gegn annarri þjóð nema það sé í sjálfsvörn eða ef ákvörðun hafi verið tekin um það í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, en slíkt var ekki gert í tilfelli Íraksstríðssins. Kærendurnir benda á að Danmörku hafi ekki stafað ógn af Írökum og þá hafi fullyrðingar um kjarnorkuvopnaeign Íraka verið algjörlega rangar. Danska þingið samþykkti 21. mars 2003 aðild Danmerkur að innrásinni í Írak en ríkisstjórnin og þá sérstaklega Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra voru harðlega gagnrýnd fyrir þá ákvörðun. Ákærendurnir 24 leggja í dag fram stefnu í málinu fyrir Eystri landsrétti í dag og í kjölfarið tekur dómurinn afstöðu til þess hvort grundvöllur sé fyrir því að taka málið fyrir. Politiken hefur eftir Henning Koch, prófessor í ríkisrétti við Kaupmannahafnarháskóla, að stríðið í Írak hafi verið ólöglegt eb gubs vegar sé ekki víst að dómstólar séu réttu aðilarnir til að taka á málinu þar sem utanríkismáls snúist ekki aðeins um lögfræðileg atriði heldur einnig völd
Erlent Fréttir Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira