Stóra samsteypa hefst handa 23. nóvember 2005 07:45 Kanslaraskiptin handsöluð. Gerhard Schröder og Angela Merkel handsala kanslaraskiptin við athöfn í kanslarahöllinni í Berlín í gær.
Angela Merkel tók við embætti í gær sem áttundi kanslarinn í sögu þýska Sambandslýðveldisins. Hún er fyrsta konan sem stýrir ríkisstjórn Þýskalands, en hún fer fyrir samsteypustjórn sem margir spá að verði erfitt að halda samstiga. Verkefnin sem bíða hennar eru stór; að stýra mesta efnahagsveldi Evrópu út úr stöðnun síðastliðinna ára er eflaust það vandasamasta. Merkel, sem er 51 árs eðlisfræðingur frá Austur-Þýskalandi, leysir Gerhard Schröder af hólmi, en síðastliðin sjö ár stýrði hann samsteypustjórn jafnaðarmanna og græningja. Hann sagði af sér þingmennsku strax í gær. Merkel hlaut 397 atkvæði í kanslarakjörinu á Sambandsþinginu, en það þýðir að 51 þingmaður stjórnarflokkanna – kristilegra demókrata og jafnaðarmanna – kaus hana ekki. Hún þurfti hins vegar aðeins 308 atkvæði til að ná kjöri. 202 þingmenn greiddu atkvæði á móti henni, 12 sátu hjá. Atkvæðagreiðslan var leynileg svo að ekki var víst hverjir úr stjórnarliðinu hefðu "svikið lit", en líklegast voru flestir "liðhlaupanna" úr röðum jafnaðarmanna. Talsmenn þeirra sóru þó að ekkert myndi skorta á stuðning þingflokksins við stjórnarsamstarfið og kanslarann. Eftir að hafa svarið embættiseiðinn sagði Merkel að Þjóðverjar biðu þess óþreyjufullir að nýja ríkisstjórnin hæfist handa eftir margra mánaða óvissuskeið. "Væntingar fólks eru miklar," sagði hún. Nýi kanslarinn þakkaði jafnframt fyrirrennara sínum fyrir það sem hann hefði gert fyrir Þýskaland og vísaði þar til viðleitni hans til að hrinda í framkvæmd umbótum á velferðarkerfinu og stuðla að eflingu efnahagslífsins. Lýsti hún því yfir að nýja stjórnin myndi byggja á þeim áföngum að þessu marki sem hann hefði náð. Merkel þarf nú að glíma við að fá hina ósamstæðu stjórn sína til að grípa til ráðstafana sem skila áþreifanlegum árangri í að ná niður atvinnuleysi og auka hagvöxt. Hún hefur líka við snúin mál að glíma í utanríkismálum, svo sem að koma tengslunum við bandamanninn stóra vestanhafs í betra horf. Meðal fyrstu staðanna sem Merkel hyggst heimsækja eftir embættistökuna er Hvíta húsið – en þó ekki fyrr en eftir viðkomu í Lundúnum og París.
Erlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira