Vilja að einhver sæti ábyrgð 2. september 2005 00:01
Ár er liðið frá einhverjum skelfilegustu atburðum rússneskrar nútímasögu, þegar hundruð barna voru drepin í árás hryðjuverkamanna á skóla í Beslan. Fulltrúar mæðra sem þar misstu börn sín hittu Pútín Rússlandsforseta í dag. Ljótar myndir vöktu óhug um allan heim: börn sem flýðu tsjetsjenska hryðjuverkamenn sem sýndu enga miskunn í barnaskólanum í bænum Beslan. Hryðjuverkamennirnir hertóku skólann og héldu honum í þrjá daga þar til hersveitir réðust á skólann og frelsuðu gíslana. 330 féllu í skotbardaganum sem fylgdi, meirihluti þeirra börn. Nú er búið að byggja nýjan skóla, en ættingjar þeirra sem létust eru enn reiðir og sárir. Þeir telja rússneska herinn bera ábyrgð á því hversu illa fór, en enginn hefur verið dreginn fyrir dóm nema eini hryðjuverkamaðurinn sem lifði af. Fulltrúar mæðra þeirra barna sem þarna dóu hittu Pútín Rússlandsforseta í Kreml í dag, ári og degi eftir að umsátrið hófst. Pútín sagði ekkert ríki geta tryggt algjörlega öryggi borgara sinni og benti á hryðjuverkin í New York, á Spáni og í London því til sönnunar. Hann sagði þó að þetta væri vissulega engin afsökun hefðu menn gert mistök við aðgerðirnar. Hann lofaði rannsókn og refsingu þeim til handa sem hana ættu skylda. Mæðurnar sögðust ánægðar með þau orð en þær tryðu engu fyrr en framkvæmd fylgdi orðunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Innlent Eldur logar í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Sjá meira