Betri forvarnir eru lykilatriði 9. október 2005 00:01
Jarðskjálftinn í gær var gríðarlega öflugur, sjö komma sjö á Richter. Þarna hafa þó orðið sterkari skjálftar í gegnum tíðina, enda er Kasmírhérað á flekamótum tveggja jarðskorpufleka sem rekast saman. Til að minnka tjón og mannfall er lykilatriði að byggja betri hús og þróa betra forvarnarkerfi, segir Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur. Ísland er reyndar einnig á flekamótum, en þau eru annars konar. Hér er Evrasíuflekann og Norður-Ameríkuflekann að reka í sundur, en Indlandsflekinn er að rekast undir Evrasíuflekann í Pakistan. "Þarna verða svokallaðir samgengisskjálftar. Indlandshaf og láglendið fyrir sunnan Himalayafjölling ganga undir Himalayafjöllin og þann fleka sem er þar norður við. Við þessa samþjöppun verða jarðskjálftarnir svona gífurlega stórir, þónokkuð miklu stærri en þeir verða hér á landi," segir Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur. Þetta má sjá á þessari mynd - láglendið gengur hreinlega undir Himalayafjöllin, sem ýtast upp og afleiðingar þess eru miklir jarðskjálftar. Kasmírhérað er þarna norðan Islamabad, höfuðborgar Pakistans og upptök skjálftans voru nærri héraðshöfuðborginni Muzaffarabad. En úr því að vitað er að þarna verða reglulega stórir skjálftar, er þá ekki hægt að koma í veg fyrir að tjónið verði svona mikið? "Það getur ábyggilega tekið langan tíma," segir Ragnar og kveður stóra málið að byggja betri hús. "Annar möguleiki, í rauninni, er að spá fyrir um skjálftann svo fólk geti komist undan áður en skjálftinn skeður. Það eru alltaf vonir bundnar við að það verði hægt en það gengur nú rólega." Ragnar segir sterkari skjálfta hafa orðið á þessu svæði, en manntjónið sé meira en hann hafi heyrt um áður. Ekki sé þó hæt að treysta því, því heimildir um manntjón í gegnum tíðina séu óáreiðanlegar.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Átta börn látin eftir skotárás Erlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent Fleiri fréttir Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Sjá meira