Langvarandi þurrkar í Suður-Evrópu 19. júlí 2005 00:01
Langvarandi þurrkarr valda vaxandi vandræðum í Evrópu. Steikjandi hiti gerir illt verra, og óttast er að þetta geti valdið mannskaða líkt og fyrir tveimur árum, þegar tugþúsundir fórust. Skógareldar valda nú miklu tjóni og mannskaða á Spáni og í Portúgal, þar sem rignt hefur minna í sumar en frá því á fimmta áratug síðustu aldar. Ástandið er ekki mikið betra í Frakklandi, þar sem hitabylgja veldur vandræðum. Spáð er enn hækkandi hita þar og hafa yfirvöld séð ástæðu til að grípa til aðgerða til verndar eldra fólki sem þolir ills þennan mikla hita. Svipaða sögu er að segja frá Spáni, Portúgal og Ítalíu. Til að bæta gráu ofan á svart hefur þurrkurinn valdið því að vatnsbirgðir eru í algjöru lágmarki og hafa ekki verið minni í Frakklandi frá því 1976. Ken Livingston, borgarstjóri Lundúna, hefur beðið samborgara sína að sturta ekki alltaf niður þegar þeir bregða sér á salernið, þar sem vatnskortur er líka vandamál á Bretlandi. Akrar og gróðurlendi eru eins og eldspýtnabox, skraufþurr og sviðin. Í suður-Frakklandi ógna engissprettur uppskerunni, en það er vandi sem betur er þekktur hundruðum kílómetra sunnar, í Afríku. Sérfræðingar segja allt stefna í að ástandið verði á næstunni verra en sumarið 2003, þegar þurrkar og hitabylgja kostuðu meðal annars fimmtán þúsund manns lífið í Frakklandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira