Innlent

Trú á endurreisn Slippstöðvarinnar

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarmanna og formaður iðnaðarnefndar Alþingis, hefur fulla trú á því að Slippstöðin á Akureyri, sem þurfti að sækja um greiðslustöðvun á dögunum, verði endurreist á sama stað. "Ég vil að stjórnvöld beiti sér í þá átt að bæta samkeppnisstöðu skipasmíðaiðnaðar hér á landi gagnvart erlendum aðilum og tel þetta vera mikið forgangsmál," segir Birkir. Að sögn Birkis eru þegar komnar fram tillögur í nokkrum liðum frá nefnd sem var skipuð af iðnaðarráðherra þar sem fulltrúar frá iðnaðarráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu og Samtökum iðnaðarins fóru yfir leiðir til að bæta starfsumhverfi íslensks skipaiðnaðar. Hann segir afar mikilvægt að missa ekki þennan iðnað úr landinu. "Það er nú einu sinni þannig að undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar er fiskveiðar og sá atvinnuvegur þarf að fá þjónustu frá fyrirtækjum eins og Slippstöðinni. Það væri dýrt að missa þessa þjónustu úr landi því það er mikil þekking í fyrirtæki eins og Slippstöðinni." Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, hefur einnig trú á að rekstur Slippstöðvarinnar haldi áfram og er ánægður með ummæli Birkis Jóns. "Það er mjög ánægjulegt að verða vitni að því að framsóknarþingmenn og fulltrúar ríkisstjórnarinnar skuli hafa svona tröllatrú á íslenskum skipasmíðaiðnaði, sérstaklega á Akureyri. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þeir beita sér í því," segir Kristján Þór. "Bæjar- og hafnaryfirvöld á Akureyri hafa verið í samskiptum við starfsmenn stöðvarinnar og ég hef enga trú á öðru en að rekstur haldi þarna áfram. Þarna er mikil þekking fyrir hendi og ágætis verkefnastaða í viðhaldi skipa. Það er ástæðulaust að láta þetta verkefni á Kárahnjúkum draga niður þá verkþekkingu og kunnáttu sem er þarna fyrir hendi."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×