Framsóknarflokkurinn tekur dýfu 3. febrúar 2005 00:01
Skoðanakönnun Fréttablaðsins um fylgi stjórnmálaflokkanna er á svipuðum nótum og aðrar kannanir hafa sýnt, að öðru leyti en því að Framsóknarflokkurinn tekur dýfu niður. Þetta segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, en samkvæmt könnuninni styðja átta prósent kjósenda flokkinn. Hann segir möguleika á að sá styr sem hefur staðið um flokkinn að undanförnu geti valdið þessu. Hann bendir á að Framsóknarflokkurinn komi oft illa út í könnunum, þó að hann fái sjaldan svona lítið fylgi. Á síðasta ári fékk flokkurinn tvisvar svipað fylgi og nú í könnunum Fréttablaðsins. Í júní fékk flokkurinn 8,1 prósents fylgi og í júlí sögðust 7,5 prósent styðja flokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn eykur fylgi sitt nokkuð frá síðustu könnunum og fær nú stuðning hjá 35 prósentum kjósenda, eða álíka mikið fylgi og Samfylkingin fær samkvæmt könnuninni. Stjórnarflokkarnir tveir fá ekki meirihlutafylgi samkvæmt könnuninni, heldur njóta þeir stuðnings 43 prósenta kjósenda. Flokkarnir tveir myndu fá 28 þingmenn yrði boðað til kosninga nú, Framsókn fengi fimm en Sjálfstæðisflokkurinn 23 þingmenn. Ólafur segir að fylgið við stjórnina hafi verið í kringum 50 prósent það sem af er kjörtímabilsins, og þetta sé því ekki út úr korti miðað við það sem verið hefur. Vinstri-grænir njóta nú 14,4 prósenta fylgis sem er nokkuð meira en flokkurinn fékk í kosningum. Í könnunum blaðsins hefur flokkurinn samt ekki notið minni stuðnings síðan í maí á síðasta ári. Þetta fylgi myndi duga fyrir níu þingmönnum, í stað þeirra fimm sem flokkurinn hefur nú. Stuðningur við Frjálslynda flokkinn rúmlega tvöfaldast miðað við könnun blaðsins í nóvember og mælist nú 6,7 prósent. Það er aðeins minna en flokkurinn fékk í síðustu kosningum, en flokkurinn héldi sínum fjórum þingmönnum.
Fréttir Innlent Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Erlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Fleiri fréttir Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Útgerðin misst tengsl við almenning og ómögulegt að fá greiðslumat Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sjá meira