Innlent

Dyntóttur janúar

Illviðri voru tíðari og snjór meiri í janúarmánuði en á sama tíma undanfarin ár samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Síðasta vika mánaðarins var hins vegar mjög hlý og leysti snjó af láglendi og upp með fjöllum. Hæsti hiti mældist á Teigarhorni og var 18 gráður 30. janúar, en mest mældist frost við auðkúluheiði og var 23,9 stig 2. janúar. Meðalhiti í Reykjavík var -0,2 stig sem er 0,3 gráðum yfir meðallag en á Akureyri var meðalhiti -0,6 stig sem er 1,6 gráðum yfir meðallagi. Sólskinstundir voru nærri meðallagi bæði í Reykjavík og á Akureyri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×