Innlent

Skrúfað niður í ensku þulunum

Útvarpsréttarnefnd beinir því til Íslenska sjónvarpsfélagsins, sem rekur Skjá einn, að hætta útsendingum á knattspyrnuleikjum sem ekki fylgir tal eða texti á íslensku. Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Skjás eins, segir að skrúfað verði niður í ensku þulunum um helgina. Óráðið sé hvað gert verði eftir helgi. Þorsteinn Gunnarsson, sem starfar sem íþróttafréttamaður á Stöð 2, kærði persónulega Skjá einn til útvarpsréttarnefndar. Í niðurstöðu sinni segir nefndin að útsendingar á leikjunum með ensku tali brjóti í bága við útvarpslög. Í þeim sé skýrt kveðið á um að efni á erlendu máli sem sýnt sé á sjónvarpsstöð skuli fylgja íslenskt tal eða texti. Magnús segir Íslenska sjónvarpsfélagið geta farið með málið fyrir dómstóla en enginn áhugi sé fyrir því. Hann segist vera með ný gögn í málinu sem hann ætli að leggja fyrir útvarpsréttarnefnd í næstu viku og þannig reyna að sannfæra hana um að breyta afstöðu sinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×